Brunavarnir fyrirtækja og stofnana
Öflugt eigið eldvarnaeftirlit hjá fyrirtækjum og stofnunum er mikilvægt í baráttunni við eldsvoða. Fræðsla og eftirlit á vinnustöðum er nauðsynlegt en eigið eldvarnareftirlit felur í sér daglegt og reglubundið eftirlit sem fyrirtæki og stofnanir sinna að eigin frumkvæði. Einnig þarf að sinna æfingum og fræðslu til starfsmanna um brunavarnir og viðbragð.
Eigandi mannvirkis ber ábyrgð á að brunavarnir séu virkar og að haft sé reglubundið eftirlit með þeim samkvæmt reglugerð 723/2017 . Forráðamaður mannvirkis ber ábyrgð á eigin brunavörnum, að þær séu virkar og að haft sé reglubundið eftirlit með þeim samkvæmt sömu reglugerðar sem nefnd er hér að ofan. Því er mikilvægt að eigandi og forráðamaður mannvirkis vinni vel saman, eftirlit og ábyrgð séu skýr á milli aðila og skjalfest. Skjalfesting skal ná til tæknilegra atriða og skipulagsþátta, skjalfestingin skal vera aðgengileg eldvarnareftirliti slökkviliðs, sjá 19.gr í reglugerð 723/2017.
Mikilvægt er að tilnefna eldvarnarfulltrúa sem sér um eftirlit og viðhald brunavarna á vinnustöðum og sá aðili heldur utan um samskipti við eldvarnaeftirlit slökkviliðs.
Hér fyrir neðan eru myndbönd um eigið eldvarnaeftirlit sem gott er að skoða. Undir kaflanum fræðsluefni má finna gagnleg skjöl fyrir eigið eldvarnaeftirlit.

