Beint í efni

Eldvarnabandalagið

Eldvarnabandalagið var stofnað 2010 og er samstarfsvettvangur um auknar brunavarnir hjá fyrirtækjum og heimilum á landinu.

Markmið Eldvarnabandalagsins er að efla brunavarnir og stuðla að öryggi almennings og fyrirtækja með því að vernda líf, heilsu og eignir. Þetta er gert með öflugu fræðslu- og forvarnastarfi til að efla brunavarnir bæði á heimilum og vinnustöðum um allt land.

Eldvarnabandalagið hefur útbúið ítarlegt, vandað og fræðsluefni um brunavarnir á heimilum og vinnustöðum og má nálgast efnið hér á vefnum.

Stjórn Eldvarnabandalagsins er skipuð einum fulltrúa frá hverjum aðila bandalagsins og fundar stjórnin einu sinni í mánuði. Málþing er haldið einu sinni á ári að hausti.

Formaður er Anna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands. Varaformaður er Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu.