Brunavarnir í landbúnaði
Landbúnaðarbyggingar hafa nokkra sérstöðu þegar rætt er um brunavarnir, þær eru oft langt frá slökkviliði og björgun úr þeim er vandkvæðum bundin. Því er mikilvægt að hugað sé vel að brunavörnum við hönnun og rekstur þeirra.
Mikilvægt að eigendur og umráðamenn þekki kröfur um brunavarnir og geti sjálfir haft frumkvæði að því að tryggja fullnægjandi öryggi bústofns og mannvirkja og aðgengi að slökkvivatni. Reykskynjarar, handslökkvitæki, léttar brunaslöngur og viðbragðsáætlun geta skipt sköpum við að takmarka áhættur og lágmarka tjón af völdum bruna.
Með ýmsum hætti má draga úr líkum á eldsvoða, sem dæmi má nefna með því að stunda markvisst forvarnarstarf, uppfræða starfsmenn og tryggja að frágangur bygginga og vélbúnaðar sé viðunandi og vera með virkt eigið eldvarnaeftirlit. Mikilvægt er að tryggja að frágangur og ástand raflagna sé eins og best verður á kosið. Reglulega þarf að yfirfara raflagnir og tryggja að allur búnaður virki sem skyldi. Öll vinna við raflagnir á að vera framkvæmd af fagmönnum. Huga þarf sértaklega að tæknirýmum og hönnun þeirra.
