Beint í efni

Brunavarnir heimilisins

Bjargvættirnir þrír, reykskynjari, slökkvitæki og eldvarnarteppi eru mikilvægir þættir í brunavörnum heimilisins.

Mikilvægt er að hafa reykskynjara í öllum rýmum heimilisins, reykskynjarar geta komið í veg fyrir eldsvoða og þeir bjarga mannslífum. Reykskynjarinn þarf að vera rétt uppsettur og nauðsynlegt að prufa hann að lámarki einu sinni á ári, nánari upplýsingar hér um reykskynjara.

Handslökkvitæki er ætlað að slökkva eld á byrjunarstigi, mikilvægt að handslökkvitæki sé staðsett í flóttaleið og nauðsynlegt er að yfirfara þau reglubundið samkvæmt leiðbeiningum frá framleiðand, nánari upplýsingar hér.

Eldvarnarteppi á að vera staðsett í eldhúsinu, nauðsynlegt að hengja það upp en ekki of nálægt eldavélinni þannig að það sé ekki erfitt að nálgast það ef eldur logar á eldavélinni, nánari upplýsingar hér.

Tvær þekktar flóttaleiðir eiga að vera á öllum heimilum, allt heimilisfólk á að þekkja flóttaleiðirnar og mikilvægt er að æfa rýmingu heimilis við eldsvoða. Nauðsynlegt er að hafa fyrirfram ákveðinn stað úti undir beru lofti þar sem allir hittast þegar út er komið, svo kallað öruggt svæði fyrir utan heimilið, nánar hér um flóttaleiðir.

Hér fyrir neðan er leiðbeiningabæklingur sem hægt er að prenta.