Gróðureldar
Veður- og gróðurfar hefur breyst mikið sem veldur því að hættan á gróðureldum og sinubruna hefur vaxið á síðustu árum. Hætta er fyrir hendi allan ársins hring, ekki engöngu á sumrin. Á vetrum getur frostþurrkaður gróður og sina verið jafn hættuleg og þurr sina um hásumar.
Fyrstu viðbrögð við gróðureldum eða sinubruna skipta miklu máli og geta varnað stór tjóni!
Hringdu í 112 og gefðu upp staðsetningu á eldinum
Láttu aðra vita í nágrenninu það gætu aðrir verið í hættu í nágrenninu
Tryggðu eigið öryggi, huga að flóttaleið
