
Heit vinna
Heit vinna telst vera hvers konar vinna þar sem unnið er með opinn eld eða annan hitagjafa, s.s. logskurðarverkfæri, logsuðu, rafsuðu, heitt loft, gasloga og fleira sambærilegt. Heit vinna nær til framkvæmda á byggingarstað. Staðbundin og varanleg starfsemi, svo sem vélaverkstæði, málmsteypur eða sambærileg iðnfyrirtæki þar sem slík vinna er framkvæmd að staðaldri og undir stýrðum aðstæðum eru framkvæmdar reglulegar úttektir og annað tengt rekstrarleyfi viðkomandi fyrirtækja.
Í tengslum við gerð mannvirkja er heit vinna skammtíma verkþáttur og þarf því að huga að ýmsum mikilvægum atriðum við slíka vinnu. Góður undirbúningur er mikilvægur, huga að viðeigandi persónuhlífum, brunavörnum, loftræsingu, sprengihættu, brunavakt á meðan og eftir framkvæmd. Ákveðinn starfsmaður hafi það hlutverk að fylgjast með brunahættu meðan á verkinu stendur og hann þarf að vera upplýstur um hvað felst í því hlutverki og hafa farið á viðeigandi námskeið.
HMS hefur gefið út sérstök tækniblöð varðandi lagningu þakpappa og notkun elds við slíka vinnu. Þar er farið yfir framkvæmdaferlið frá byrjun til enda með leiðbeiningum og skýringum á því hvernig skuli bera sig að. Í tækniblaðinu (99)24 12 26, Lagning þakpappa, undirbúningur, forvarnir og framkvæmd, fylgja viðaukar sem innihalda, gátlista, dagskýrslu brunavarðar og áhættumat.
Hér neðar á síðunni má nálgast PDF-skjöl með Rb-leiðbeiningum um lagningu þakpappa.
Rb-leiðbeiningablað lagning þakpappa gefið út 23.12.2024
Rb-leiðbeiningablað - viðauki 3 áhættumat við lagningu þakpappa gefið út 23.12.2024
Heit vinna nánari upplýsingar
HMS sér um útgáfu og útgáfusafn RB-blaða og eru blöðin gjaldfrjáls, þau er hægt að nálgast hér.
Rb-tækniblöð eru ætluð til leiðbeininga í mannvirkjagerð fyrir breiðan hóp notenda og sniðin að ákveðnum markhóp miðað við efnistök.
Tækniblöðin sem hér um ræðir varðandi heita vinnu eru sniðin að framkvæmdaferli og þeim aðilum sem framkvæma vinnuna á verkstað.
HMS og Vinnueftirlitið hafa gefið út veggspjöld með varúðarráðstöfunum við heita vinnu (PDF) á íslensku, ensku og pólsku.
Er öryggið í lagi? Lóðrétt (A3)
Er öryggið í lagi? Lárétt (A3)
Is safty secured? Portrait (A3)
Is safty secured? Landscape (A3)
Czy BHP jest zachowane? Portret (A3)