Leiðbeiningar um eigið eldvarnareftirlit
og eldvarnarstefnu
Eldvarnabandalagið hefur gefið út efni sem forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana geta nýtt sér til að koma á eigin eldvarnaeftirliti. Fjallað er um tíu helstu þætti eigin eldvarnaeftirlits. Hér fyrir neðan er veggspjald með upplýsingum um brunavarnir á vinnustaðnum.
Þá hefur Eldvarnabandalagið gefið út fyrirmynd að eldvarnastefnu sem fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að tileinka sér og framkvæma á grundvelli leiðbeininganna.